Garðalundur sigraði Söngkeppni Samfés 2020

}

29.5.2020

Félagsmiðstöðin Garðalundur sigraði söngkeppni Samfés 2020! Söngkeppnin fór fram með breyttu sniði í ár…

Söngkeppnin fór fram með breyttu sniði í ár í ljósi COVID-19, en allir 30 keppendur sendu inn atriði sín sem síðan voru birt á heimasíðu UngRÚV: Smelltu hér til að sjá öll atriðin (Til að sjá öll atriðin þarf að fara neðar á síðuna). Í ár fór einnig fram netkosning þar sem yfir 6000 manns tóku þátt í að velja Rödd Fólksins 2020.

Það má með sanni segja að besta söngfólk okkar Íslendinga hafi tekið þátt í keppninni í ár, en þau fóru öll í gegnum undankeppnir í heimabyggð og þar eftir landshlutakeppnir til að tryggja sér sæti í lokakeppninni.

 

Í fyrsta sæti var Þórdís Linda Þórðardóttir frá félagsmiðstöðinni Garðalundi með lagið Wondering. Smelltu hér til að hlusta á atriðið hennar!

 

 

Í öðru sæti var Alexandra Magnúsdóttir frá félagsmiðstöðinni Tíunni með lagið Thunderclouds. Smelltu hér til að hlusta á atriðið hennar!

 

 

Í þriðja sæti voru Emilía Hugrún Lárusdóttir og Sigríður Júlía Wium Hansdóttir frá félagsmiðstöðinni Svítunni með lagið At Last. Smelltu hér til að hlusta á atriðið þeirra!

 

 

Ninja Sigmundsdóttir frá félagsmiðstöðinni Arnardal var kosin Rödd Fólksins 2020. Smelltu hér til að hlusta á atriðið hennar!

 

 

 

Við óskum öllum þátttakendum Söngkeppni Samfés 2020 innilega til hamingju með frábæra keppni!