SamFestingurinn

}

9.11.2020

SamFestingurinn 

Árið 1991 var fyrsta Samfésballið haldið í Hinu Húsinu. Samfés var með þessum viðburði að mæta óskum unglinganna fyrir sameiginlega skemmtun allra félagsmiðstöðva. Ungmennaráð Samfés nefndi viðburðin SamFestinginn. .

Frá 2001 hefur SamFestingurinn verið haldinn í Laugardalshöllinni þar sem aðrir staðir voru sprungnir vegna fjölda ungmenna. Síðustu ár hafa mætt um 4500 ungmenni, um 30% unglinga landsins, alls staðar að af landinu og fulltrúar 120 félagsmiðstöðva, ásamt 300-400 starfsmönnum.

SamFestingurinn samanstendur af nokkrum viðburðum. Á föstudeginum koma unglingar og starfsfólk í rútum í Laugardalshöll á risa ball þar sem stór bönd spila fyrir dansi í bland við unga tónlistarmenn úr félagsmiðstöðvunum. Á laugardeginum fer fram Leiktækjamót og Söngkeppni Samfés fram en keppnin er iðulega send út í sjónvarpi líka. Þar stíga á stokk margir af efnilegustu söngvurum landsins og undirspilið er oftast leikið af ungum hljóðfæraleikurum úr félagsmiðstöðvunum.

Ungmennaráð Samfés sér alfarið um að setja upp dagskránna og velja þá plötusnúða og hljómsveitir sem koma fram á SamFestingnum.

SamFestingurinn er án efa stærsti vímulausi viðburðinn af þessu tagi sem haldinn er á Íslandi.

 Reglur Samfés gilda á SamFestingnum.

  • 1 starfsmaður á 17 unglinga
  • Allir unglingar skulu koma og fara með rútu með sinni félagmiðstöð (enginn á eigin vegum).
  • Viðburðurinn er tóbaks, áfengis og vímuefnalaus.

 Allar upplýsingar um ballið og Söngkeppnina eru sendar á aðildarfélaga Samfés.