Ungmennaráð Samfés
Ungmennaráð Samfés er lýðræðislega kjörið ráð ungmenna á aldrinum 13-16 ára (8. – 10. bekkur) alls staðar að af landinu.
Tillaga um stofnun ungmennaráðs Samfés var samþykkt á aðalfundi Samfés í Ólafsvík 27. apríl 2006. Formlega tók ungmennaráðið til starfa eftir Landsmót Samfés sem haldið var í Garðinum á Suðurnesjum árið 2006.
Kosningar í Ungmennaráð Samfés fara árlega fram á Landsmóti Samfés. Alls er kosið í 9 kjördæmum, þannig eru fulltrúar ráðsins 27 talsins. Mikilvægt er að upplýsa og hvetja unga fólkið til að bjóða sig fram og senda inn framboð á réttum tíma. Skráning frambjóðenda fer fram í gegnum félagsmiðstöðina. Hver félagsmiðstöð má senda inn eitt framboð.
Tilgangur ungmennaráðs Samfés er að efla þátttöku ungmenna í félagsmiðstöðvastarfi, auka jafningjafræðslu. Að ungmenni öðlist rödd í samfélaginu svo að ekki sé allt miðað við fullorðna. Að ungmenni hafi tengiliði á landsvísu til þess að ræða málefni sem snúa að þessum aldurshópi. Efla Evrópusamstarf við önnur ungmenni. Hafa áhrif á og vinna að viðburðum á vegum Samfés, og hafa áhrif á fjölmiðlaumfjöllun.
Markmið Ungmennaráðs Samfés eru að:
- Að ungmenni komi að ákvarðanatöku samtakanna í öllum málum þeirra.
- Að taka virkan þátt í allri ákvarðanatöku samtakanna.
- Að gæta hagsmuna ungmenna í öllum málum s.s. umfjöllun, réttindamálum o.s.frv.
- Að það sé ekki brotið á ungmennum varðandi réttindi þeirra og hagsmuni.
- Að skapa grundvöll til þess að ungmenni geti komið saman og komið sínum skoðunum á framfæri.
- Að halda árlegt landsþing og koma niðurstöðum áleiðis.
- Að efla samfélagslega vitund ungmenna og efla lýðræðislega þátttöku.
- Efla samband félagsmiðstöðva og ungmenna á landsvísu.
- Að fræða önnur ungmenni um hvernig þau geti tekið þátt í lýðræðislegu samfélagi.
- Bera ábyrgð á að efla félagslíf sem höfðar til allra hópa.
- Vera meðvituð um skoðanir annarra. Það hafa ekki allir sama smekk og þú.
- Tryggja áframhaldandi aðkomu ungs fólks að allri ákvarðanatöku og stefnumótun Samfés.
- Tveir fulltrúa ungmennaráðsins mæti á og taka virkan þátt á öllum stjórnarfundum Samfés.
- Að vera ráðgjafar í stefnumótun í öllum málefnum sem varða ungt fólk.