Vikan hefur það að markmiði að kynna og varpa ljósi á það mikilvæga starf sem fram fer í félagsmiðstöðvunum og ungmennahúsinu fyrir börn og ungmenni. Starf félagsmiðstöðva og ungmennahúsa er í eðli sínu forvarnastarf og ætlað að styðja við félagsfærni, sjálfseflingu, sköpun og heilbrigði ungs fólks. Þátttaka í skipulögðu starfi félagsmiðstöðva og ungmennahúsa í öruggu umhverfi með fagfólki hefur mikilvægt forvarnargildi og eykur líkur á því að ungt fólk kjósi heilbrigðan lífsstíl og forðist áhættuhegðun. Starfsfólk félagsmiðstöðva og ungmennahúsa leggja ríka áherslu á að bjóða alla velkomna.
Félagsmiðstöðva- og ungmennahúsavikan er haldin á öllu landinu fyrir tilstilli Samfés samtaka félagsmiðstöðva og ungmennahúsa á Íslandi.
Sjá kynningarmyndband um félagsmiðstöðvarnar og ungmennahúsin