„Þegar allt er í rugli í rafmagninu hjá mér, þá hringi ég ekki í píparann minn… þó hann sé frábær“ – Vanda Sig
Samstöðufundur Samfés, FÍÆT og FFF fram fór í gær, fimmtudaginn 26. júní, í Stúdentakjallaranum. Fundurinn var vel sóttur, bæði af gestum á staðnum og í gegnum streymi, og skýr skilaboð bárust um mikilvægi þess að standa vörð um faglegt og sjálfstætt frístundastarf. Á fundinum fluttu fjölbreyttir og öflugir fyrirlesarar erindi þar sem þeir lýstu áhyggjum sínum af þeirri ákvörðun Akureyrarbæjar að færa félagsmiðstöðvar undir grunnskóla. Ræðumenn voru sammála um að slík breyting gangi gegn bæði rannsóknum og áratugalangri reynslu þeirra sem starfa í frístundageiranum.
Við tökum heilshugar undir með þeim sem fluttu erindi á fundinum og hvetjum önnur sveitarfélög til að líta ekki til Akureyrar sem fordæmis í þessum efnum. Þvert á móti sýnir öll þekking á málefninu að slíkar breytingar grafa undan gæðum starfsins og veikja stöðu fagfólks. Jafnframt óskum við eftir stuðningi skólastjórnenda um allt land, að hafna sambærilegum breytingum og standa með fagfólki í frístundastarfi, rétt eins og við höfum í gegnum tíðina staðið með þeirra fagstétt. Saman tryggjum við að börn og ungmenni njóti áfram fjölbreytts, faglegs og sjálfstæðs frístundastarfs.
Forysta Samfés, Félags fagfólks í frístundastarfi (FFF) og Félags íþrótta-, æskulýðs- og tómstundafulltrúa (FÍÆT) ítrekar boð sitt til embættismanna og annarra sem komu að ákvörðun Akureyrarbæjar um að koma til fundar og eiga samtal um mikilvægi sjálfstæðs frístundastarfs.

Fram komu:
Vanda Sigurgeirsdóttir, lektor við HÍ
Helgi Eiríksson, framkvæmdastjóri í Reykjavík
Árni Guðmundsson, félagsuppeldisfræðingur
Gunnar E. Sigurbjörnsson, formaður FÍÆT
Margrét Gauja Magnúsdóttir, skólastjóri Lýðskólans á Flateyri
Guðrún Helgadóttir, forstöðumaður ungmennastarfs Mosfellsbæjar
Einnig sendum við kveðjur og hjartans þakkir til þeirra sem vildu gjarnan koma fram en komumst ekki, þau:
Guðmundur Ari Sigurjónsson (alþingismaður)
Soffía Pálsdóttir (skrifstofustjóri frístundamála hjá skóla og frístundasviði Reykjavíkurborgar og fálkaorðuhafi)
Eygló Rúnarsdóttir (aðjúnkt við HÍ og formaður æskulýðsráðs).
Upptöku af fundinum má finna hér: