Aðildarfélagar
Aðilar að Samfés geta þær félagsmiðstöðvar og ungmennahús orðið sem starfa skv. 1. gr. æskulýðslög 70/2007 og bjóða upp á skipulagt og opið æskulýðs- og tómstundastarf skv. 3. gr laga Samfés. Í dag eru 133 aðildarfélagar að Samfés.
Félagsmiðstöðvar
– Kröfur um reynslu eða menntun á sviði frítímans, a.m.k. hjá yfirmanni.
– Að það sé símenntunaráætlun í boði.
– Þegar félagsmiðstöð er opin skal ávallt stefnt að því að hafa a.m.k. tvo starfsmenn á vakt hverju sinni.
– Passa skal upp á að samningar og tryggingar séu til staðar og að starfsmaður sé með ráðningarsamning.
– Allir starfsmenn félagsmiðstöðvar sem og aðrir sem að starfseminni koma skulu vera með hreint sakavottorð.
– Félagsmiðstöð skal vera opin a.m.k. tvisvar í viku utan skólatíma yfir starfsárið.
– Unglingalýðræði skal viðhaft og stefnt skal að því að í félagsmiðstöðvum séu starfrækt unglingaráð eða annar sambærilegur lýðræðislegur vettvangur unglinga.
– Samvinna en samt sem áður skýr aðgreining skólastarfs og félagsmiðstöðva.
– Starfað er eftir forvarnar- og uppeldismarkmiðum sem samræmast markmiðum samtakanna.
– Jafnt aðgengi fyrir alla að félagsmiðstöð.
Ungmennahús og önnur starfsemi 16+
– Kröfur um reynslu eða menntun á sviði frítímans, a.m.k. hjá yfirmanni.
– Að það sé símenntunaráætlun í boði og tryggja skal fræðslu og þjálfun þeirra starfsmanna/sjálfboðaliða sem að starfinu koma.
– Þegar ungmennahús er opin skal ávallt stefnt að því að hafa starfsmann/ og eða sjálfboðaliða á vakt hverju sinni.
– Passa skal upp á að samningar og tryggingar séu til staðar og að starfsmaður sé með ráðningarsamning.
– Allir starfsmenn sem og aðrir sem að starfseminni koma skulu vera með hreint sakavottorð.
– Ungmennahús skal vera opin a.m.k. tvisvar í viku utan skólatíma yfir starfsárið.
– Ungmennalýðræði skal viðhaft og stefnt skal að því að í ungmennahúsum séu starfrækt ungmennaráð eða annar sambærilegur lýðræðislegur vettvangur ungmenna.
– Samvinna en samt sem áður skýr aðgreining skólastarfs og ungmennahúsa.
– Starfað er eftir forvarnar- og uppeldismarkmiðum sem samræmast markmiðum samtakanna.
– Jafnt aðgengi fyrir alla að ungmennahúsi.
Tilgangur með tilmælum þessum er að efla frekar og auka gæði starfs í félagsmiðstöðvum og ungmennahúsum innan Samfés.