Rödd fólksins árið 2021

}

18.5.2021

Rödd fólksins 2021 Unglingar af öllu landinu hafa tekið þátt í forkeppnum, landshlutakeppnum og valin voru 30 atriði sem kepptu í úrslitum Söngkeppni Samfés 2021.

Keppnin var send út í beinni á UngRúv, eftir keppnina fór af stað netkosning um titilinn “Rödd fólksins 2021“ og voru í kringum 5000 manns sem tóku þátt í kosningu.

Sigurvegari í Rödd fólksins var  Katrín Ýr ásamt Aðalheiði, Margréti og Kristínu í bakröddum úr Félagsmiðstöðinni Ekkó í Kópavogi. Þær tóku lagið Húsavík úr kvikmyndinni Eurovision Song Contest.

Óskum við hjá Samfés þeim til hamingju með sigurinn og hlaut sigurvegari í verðlaun míkrafókn frá Hljóðfærahúsinu.