Hönnuðir framtíðarinnar á Stíl 2021

}

5.4.2021

Hönnunarkeppni unga fólksins, Stíll, fór fram í íþróttahúsinu Digranesi laugardaginn 20. mars,

en þema keppninnar í ár var sirkus. Keppendur eru á aldrinum 13 til 16 ára. Ungmenni af öllu landinu komu saman í Íþróttahúsinu Digranesi til að taka þátt í Stíl – Hönnunarkeppni unga fólksins sem fyrst var haldin árið 2001.

Þemað, sem valið er af Ungmennaráði Samfés var í ár „Sirkus”. Á þessum árlega viðburði keppa félagsmiðstöðvar frá landinu öllu um bestan árangur í hárgreiðslu, förðun, gerð hönnunarmöppu og fatahönnun.

Markmið Stíls er að veita ungmennum vettvang til að efla sköpunar- og hönnunarhæfileika, hitta jafnaldra sína og sýna afrakstur margra mánaða undirbúningsvinnu hópsins. Margir grunnskólar landins bjóða upp á Stíls valáfanga fyrir nemendur sína þar sem þeim býðst að vinna saman að hönnun sinni á skólatíma í samstarfi við félagsmiðstöð í heimabyggð.

Með viðburðinum er vakin jákvæða athygli á því hvað unglingar eru að gera á sviði hönnunar og gefa þeim kost á að koma sinni hönnun og hugmyndum á framfæri á viðburðinum. Einnig kemst unga fólkið í kynni við fleiri sem hafa einnig áhuga á hönnun.

Dómnefnd á  Stíl: Andrea Bergmann Halldórsdóttir, Laufey Sif Ingólfsdóttir og Kristín Gunnarsdóttir.

Úrslit STÍLL – Hönnunarkeppni unga fólksins.

1. Sæti. Félagsmiðstöðin Garðalundur (Garðabæ). Stefanía Þóra Ólafsdóttir (módelið), Ragnhildur Elva Kjartansdóttir, Iðunn Björnsdóttir og Arna Sara Guðmundsdóttir

2. Sæti. Félagsmiðstöðin Kjarninn (Kópavogi). Nanna Katrín Hrafnsdóttir  (módelið), Guðrún Emilía F Guðlaugsdóttir, Lilja María Vilhjálmsdóttir og Naima Emilía Emilsdóttir

3. Sæti. Félagsmiðstöðin  Ásinn (Hafnarfirði). Kolbrún Sara (módelið), Ísabella Aníta og Elísabet Eva

Besta förðunin – Félagsmiðstöðin Hraunið (Hafnarfjörður). Brynhildur, Nína Björk, Guðrún Eva og Elísabet Eva (módelið).

Besta hönnunarmappan – Félagsmiðstöðin Þrykkjan (Hornafjörður). Róbert Þór Ævarsson (módelið), Magndís Lóa Aðalsteinsdóttir, Sunna Lind Sævarsdóttir og Helga Kristey Ásgeirsdóttir

Flottasta hárið – Félagsmiðstöðin Arnardalur (Akranesi). Líf Ramundt Kristinsdóttir (módelið), Arina Pecorina og Kristrún Lilja Ragnarsdóttir