SamFestingurinn er árleg hátíð Samfés, samtaka félagsmiðstöðva á Íslandi og er haldinn með því sniði
að á föstudagskvöldi er ball og á laugardeginum Söngkeppni Samfés.
Ungmennaráð Samfés, sem er skipað átján lýðræðislega kjörnum fulltrúum, hafa veg og vanda að dagskránni,
og velja þau plötusnúðana og hljómsveitirnar sem koma fram á SamFestingnum.

Á Söngkeppninni gefst unglingum kostur á að koma fram á stóra sviðinu og syngja fyrir framan jafnaldra
sína af landinu. Undankeppnir hafa farið fram í öllum landshlutum og þrjátíu atriði verið valin til þátttöku.
Það má því með sanni segja að efnilegustu söngvarar og söngkonur landsins komi fram á Söngkeppni Samfés.
SamFestingurinn er án efa stærsti vímulausi viðburðinn af þessu tagi sem haldinn er á Íslandi.
Í Laugardalshöllina mæta um 4.500 unglingar á aldrinum 13-16 ára (efstu bekkir grunnskólans)
eða um 30% unglinga landsins, alls staðar að af landinu.
Reglur Samfés gilda á SamFestingnum.
- 1 starfsmaður á 17 unglinga
- Allir unglingar skulu koma og fara með rútu með sinni félagmiðstöð (enginn á eigin vegum).
- Viðburðurinn er tóbaks, áfengis og vímuefnalaus.
Allar upplýsingar um ballið og Söngkeppnina eru sendar á aðildarfélaga Samfés.